26.5.2008 | 12:37
Hjallastefnan
Ég gerðist svo djörf að fara inn á www.er.is og kíkja á umræðuna þar sem ég annars aldrei geri. Þar er verið að ræða Hjallastefnuna og virðist fólk annað hvort vera algerlega með henni eða algerlega á móti henni. Sumt þarna sem ég las fékk mig til að hlæja 
"Myndi held ég ekki fara með barnið mitt á leikskóla þar sem hrein hjallastefna væri. Finnst það soldið spúkí amish stefna." - hvað í hjallastefnunni er líkt Amish?
"þetta var voða sniðugt einu sinni en þetta er gjörsamlega komið út í öfgar... það er ekki einu sinni púsluspil á þessum leikskólum sem eru með hreina stefnu... Hef aldrei skilið þetta samt er ekki nóg fyrir þessu blessuð börn að vera í skipulögðu starfi þegar þau byrja í skóla og leyfa þeim að njóta þess að vera lítil og leika sér..." - sem sagt bráðnauðsynlegt að hafa forheimskandi pússluspil sem barnið lærir á fyrsta degi og situr svo örvunarlaust og raðar saman pússlbitum 10 á hálfri mínútu; ef þetta er af þeim tekið og þeim færður í hendur örvandi efniviður þá fá þau ekki að vera börn.
"ég segi nú bara er nú ekki í lagi að láta þau fá rassaþotur heldur en að láta þau renna sér á cheriospökkum..." - af hverju þarf alltaf að hafa allt innkeypt í stað þess að kenna börnunum að bjarga sér og nýta það sem til er? þessi plastárátta mannfólksins er óþolandi finnst mér.
"Ég hef enga reynslu af hjallastefnuleikskólum en ég er ekki að fíla hugmyndina á bak við stefnuna, ég myndi því hiklaust setja barnið á æðislega leikskólan sem dóttir þín var á ;)" - hvernig getur maður ekki fílað það sem maður ekki þekkir?
"Ég náttúrulega gleymdi að segja að allt starfsfólkið er í eins fötum svo að börnin leiti ekki til neins eins starfsmanns.
Allir eru jafnir á hjallastefnuleikskólum." - veit ekki hvaðan hún hefur þetta :D þetta er klárlega ekki hugsunin á bakvið vinnuföt kennarana.
"En ég hef einmitt heyrt það með hópaskiftinguní hjallastefnuni að hópstjórinn sem er með hópinn í matatímanum og hópastarfi og öllu að það sé einmitt bara 1 hópstjóri svo að þau geti leitað mest til hans. Hjá okkur er þetta þannig að við dreifum þessu þannig að börnin kynnist okkur öllum sem mest. Það var ein sem kom t.d á deildina mína síðasta sumar þá rúmlega 2 ára og búin að vera á hjallaleikskóla og hún vikldi bara vera hjá einhverri 1 manneskju þar!! En börn eru eins misjöfn og þau eru mörg :)" - börnin kynnast öllu starfsfólki jafn í Hjallastefnunni þó þau eigi sér einn umsjónaraðila sem þau geta treyst á í einu og öllu, leitað til og vita að það er einhvern þarna fyrir þau. Foreldrar elska líka þessa leið, að vita af einhverju sem þau geta komið til og fengið upplýsingar um barnið í daglegu starfi.
"Það sem ég sé sem helsta gallan við hjallastefnuna er að hún er ekki lifandi.. hún s.s. er ekki eins og aðrar stefnur sem þroskast og þróast heldur er hún niður njörfuð.. óhagganleg.." - bull, bull, bull, bull og vitleysa :D Hjallastefnan tekur örum breytingum til hins betra, það sem gengur ekki upp eftir að hafa verið prófað er tekið og breytt. Vitleysan í fólki.
"Það er ekki það sama að vera með einhverja fína stefnu á pappírum og svo að fylgja henni eftir. Hjá hjalla getur maður nákvæmlega treyst því að farið sé eftir því sem gefið er upp" - Hjartanlega sammála þessu. Hef reynslu af haug af vinnu með börnum utan hjallastefnunnar og þar voru til fagurflúruð markmið sem voru aldrei í framkvæmd einfaldlega af því að ófaglært fólk fékk ekki þjálfun eða almenna fræðslu. Í hjallastefnunni voru einföld og skýr markmið sem nýju starfsfólki var kennt strax svo allir stóðu jafnfætis í vinnunni. Engin tilviljun að börn með ýmsar raskanir koma hrikalega vel undan hjallastefnunni. Höfum fengið inn til okkar börn sem hafa verið algerlega á hliðinni og koma niðurbrotin af öðrum leikskóla. Eftir veru í hjallastefnunni voru þau fljót að taka við sér og foreldrar tárvotir yfir því.
"fyrir minn smekk er hjallastefnan of kennaramiðuð og hentar mínu fólki betur frjáls leikur og barnamiðað starf" - þarna meig ég næstum undir :D af hverju heldur fólk að það sé ekki frjáls leikur í hjallastefnunni? hef einmitt aldrei séð eins frjálsan leik og þar.
"Hjallastefnan...nei takk, minnir mig of mikið á ofsatrúar söfnuð.
Fyrir utan það að þetta "Hjallasnobb" sem orðið er meðal aðstandenda og kennara þessa skóla er með öllu óþolandi, ég meina hvernig er það börnunum til framdráttar að það umhverfi sem þau lifa og hrærast í sé svo miklu merkilegra en allt annað!!!
já þannig "Hjallastefnan" nei takk" - þurfum við eitthvað að ræða þetta?
21.4.2008 | 12:25
Mikið að gera í maí
Dásamlegt að vorið skuli loks vera komið! Veðrið er yndislegt og hlakka ég til að eyða sumrinu uppi í bústað. Fórum upp eftir um helgina og finnst mér Borgarfjörðurinn æðislegur. Hlakka til að dúlla mér í gróðurrækt við bústaðinn. Ætla ég að búa til minn langþráða matjurtargarð þarna upp frá.
Annars styttist verulega í brúðkaupið, innan við mánuður í það og lítið búið að skipuleggja. Enda kannski ekki mikið að skipuleggja fyrir lítið og krúttlegt brúðkaup þar sem einungis verða þeir allra nánustu. Góðir hlutir gerast hægt og er ég ekkert að stressa mig yfir því. Svo eru bara 6 dagar í ferminguna hans Jóhannesar, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.
Ekki nóg með að vera að skipuleggja brúðkaup, þá hef ég verið ansi dugleg að skrá mig á námskeið
Um miðjan maí byrja ég á magadansnámskeiði hér á Selfossi. Fer með SigguMaju sem hefur æft magadans í 2-3 ár. Er ég mjög spennt fyrir magadansnámskeiðinu. Svo viku fyrir brúðkaup fer ég á leiðbeinendanámskeið hjá Blátt áfram og mun ég í framhaldinu halda forvarnanámskeið á vegum Blátt áfram. Ég er sannfærð um að námskeiðið verði ákaflega áhugavert og hlakka ég bara til að takast á við þetta verkefni.
Klárlega nóg að gera í maí, blessunarlega slaufuðum við í ríjúníonnefndinni Reunion-ið af sem átti að vera í lok maí. Ætlum að vera með það í staðinn í september eða október.
Jæja, farin að undirbúa mömmuhittinginn sem verður hér eftir smástund!
3.4.2008 | 20:40
Til hamingju
|
Margrét Pála og Viðskiptaráð hljóta frelsisverðlaun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.3.2008 | 11:21
Hrædd um líf mitt og limi
Kannski full dramatísk en hey það má þegar maður er lögleg dramadrottning! eða var í gamla daga...hefur elst vel af mér.
Um það leyti sem Æsulingur verður eins árs hef ég verið með bílprófið í 14 ár hvorki meira né minna. Hef bráðlega haft ökuleyfi hálfa ævina. Frá upphafi hef ég verið ákaflega góður bílstjóri að mínu mati
nánast alltaf keyrt á löglegum hraða (eða hægar
), virt flestar umferðarreglur og verið traustur bílstjóri. Vissulega var maður smá glanni á upphafi ferilsins enda tel ég 17 ára börn ekki hafa þroska til að valda svona stóru hlutverki. Ef maður sá sæta stráka þurfti maður að sýna sig all verulega fyrir þeim, gefa í og svo framvegis. Þrátt fyrir að hafa byrjað eins og flest ungmenni var það fljótt að brá af mér og mín farin að keyra eins og manneskja fljótlega eftir það.
Á mínum ökuferli hef ég sloppið ansi vel frá tjónum. Bakkaði reyndar á milljón á ljósastaur suður með sjó um árið eftir eitthvert strákastandið. Mörgum árum síðar var keyrt aftan á mig svo bíllinn minn krumpaðist laglega. Fór nokkrum dögum síðar í þynnkunni í Hagkaup og bakkaði laust utan í bíl sem ég sá ekki á. Drengurinn sem keyrði þann bíl fór aftur á móti að grenja því hann hélt að minn bíl væri í klessu eftir þetta atvik
Í fyrra velti ég svo jeppanum hans Eggerts þannig að hann gjöreyðilagðist. Nokkur tjón þar sem bílarnir hafa látið á sjá og ég tognað á baki + hálsi en engan slasað.
Aftur á móti er ég orðlaus þegar kemur að akstri fólks hér í Árborg
Þau tvö ár sem ég hef búið hér er ég alltaf að lenda í því að fólk virði ekki rétt annarra. Þegar ég bjó í Reykjavík var ég aldrei hrædd í umferðinni og eins þegar ég bjó í Bandaríkjunum. Var pollróleg þar á hraðbrautunum sem og í minni umferðargötum. Það djarfasta sem ég lenti í þar var að keyra tvívegis yfir á rauðu ljósi
Hér í "sveitinni" svínar fólk undantekningalaust fyrir mann. Ég er löngu hætt að gera ráð fyrir að fólk stoppi á biðskyldu og stöðvunarskyldu því það er sjaldnast raunin. Ef ég keyri eftir aðalgötunni skjótast bílarnir svoleiðis út úr öllum hliðargötum, frá Bónus, Nóatúni, Húsasmiðjunni og bara name it. Ástandið versnaði svo til muna þegar hringtorgið kom við brúna, hjálpi mér nú allir heilagir. Fólk hér kann bara ekki að keyra inn og út úr hringtorgum og hefur þetta algerlega eftir sinni hentisemi. Ég svitna bara þegar ég nálgast hringtorgið og ákalla æðri mátt til að freista þess að komast heill út úr því. Lenti t.d. í því í gær að það kom kona á fullum farti inn í hringtorgið þar sem ég var fyrir, hentist inn í innri hringinn í veg fyrir mig og munaði litlu að hún hefði bara straujað þverrt yfir það. Hvað er málið? þyrfti kannski að gera átak hér í Árborg þar sem fólki er gert að fara í nokkra aukatíma hjá ökukennara til að rifja upp réttu tökin? það þarf að skoða þetta alvarlega því margir virðast hafa fengið ökuskírteinið í kókópöffspakka. Ef þetta fólk keyrði svona í Reykjavík væri það keyrt niður á mettíma.
Ég skora á ráðamenn Árborgar að skoða þennan vanda nánar og reyna að finna lausn á málinu. Það getur verið að slysin séu kannski ekki mörg en með þessu áframhaldi mun eitthvað alvarlegt gerast sem hægt er að koma í veg fyrir 
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.3.2008 | 17:10
Friður og ró
Dagurinn í dag er búin að vera yndislegur. Friður og ró út í eitt. Ég vaknaði eldsnemma og fór á fætur með prinsessunum. Agnes Halla fór svo fljótlega yfir til Valgerðar þar sem hún ætlaði með henni á samkomu og um svipað leyti sofnaði Æsa aftur. Ég hafði því me-time í góða stund meðan feðginin sváfu. Það er greinilega þreytandi að vera orðinn fertugur, svona miðað við þreytuna í Eggerti 
Upp úr hádegi voru öll börnin komin í hús og ákvað ég þá að drífa bara matinn af. Borðuðum því hamborgarhrygg um kl. hálf fjögur
Eftir matinn hefur bara hver verið í sínu horni og endalaus rólegheit í gangi. Rólegheitin eru ekki minni í hjartanu mínu, er svo uppfull af æðruleysi, ró, kærleika og friði. Dásamlegt að líða svona vel.
Dagurinn er svo hvergi nærri búinn, fullt af góðu efni í sjónvarpinu í kvöld, nóg af bókum að lesa, svo keypti ég mér 12 videóspólur í gær á videómarkaði svo ég gæti litið í þær eða mögulega farið í göngutúr til að viðra mig aðeins. Hreinlega allt í boði fyrir mig, bara mitt að velja 
Á morgun er svo enn einn frídagurinn og finnst mér ótrúlega góð tilfinning að vera ekki búin að plana hann út í þaula eins og ég á kyn til. Ætla að klára þennan dag án þess að ég fari nokkuð að skipuleggja þann næsta.
Gleðilega páska allir saman og til hamingju með afmælið í gær elsku Eggert minn.
20.3.2008 | 13:52
Páskahátíðin gengin í garð
Langt síðan ég hef bloggað
Fyrir þá sem hafa beðið spenntir eftir úrlausn síðustu færslu...þá er búið að spjalla við aðstoðarskólastjórann og voru þess orð víst aldrei mælt. Unglingurinn hafði ekki tekið nógu vel eftir í tíma og hafði tekist að snúa laglega út úr orðum mannsins.
Æsa litla stækkar ört, farin að blaðra heil ósköp og velta sér á báða bóga. Getur setið að mest án stuðnings og farin að borða fasta fæðu - og hún sem fæddist í gær
Situr í þessum skrifuðu orðum við dótakassann sinn og ákallar Didda bróður sinn milli þess sem hún reytir upp úr kassanum.
Eggert verður svo fertugur eftir 2 daga og eigum við því von á gestum í smá kaffi. Annars verða páskarnir bara ofboðslega rólegir og notalegir, afslappelsi og rólegheit. Meðan aðrir fjölskyldumeðlimir háma í sig páskaeggjum ætla ég að vera dugleg að lesa og einnig að vinna í öðru sporinu. Finnst ótrúlega gott að fara rólega í gegnum sporin. Tók fyrsta sporið á þremur vikum og finnst mér það skila betri árangri en þegar ég hef gert þetta hraðar.
Ylfa systir bauð mér svo til Köben 10. - 14. apríl í vinkonuferð að heimsækja Ragnhildi. Æsa verður heima hjá pabbanum og er ég því bæði spennt og smá kvíðin. Veit samt að þetta fer vel enda Eggert enginn viðvaningur þegar kemur að börnum 
Ég er byrjuð að spá á ný. Er á fullu að taka niður bókanir á spákvöld og verð að viðurkenna að mér brá yfir því hvað aðsóknin er mikil. En hrikalega gott að komast aðeins út á kvöldin og halda áfram að virkja þessa orku.
Páska-Brynka
27.2.2008 | 23:22
Jedúddamía
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
18.1.2008 | 23:45
Fékk tár í augun
Þvílík gleði, þvílík gleði....
Ég lá uppi í rúmi áðan með heavy bakverki þegar minn ástkæri færði mér grein sem hann hafði rifið úr lókalnum aka. Glugganum. "Hvað á nú að láta mig lesa?" hugsaði ég og bjóst við að þetta væri leikárið í Borgarleikhúsinu eða grein um að mjólk yki líkur á blöðruhálskrabbameini. En nei ó nei!!!
Um leið og ég las fyrirsögnina fylltust augu mín af gleðitárum - Hvergerðingar ræða Hjallastefnu stóð skýrum stöfum!
"Bæjarráð hefur samþykkt að hefja nú þegar viðræður við Margréti Pálu Ólafsdóttur um þá möguleika sem felast í samstarfi Hveragerðisbæjar og Hjallastefnunnar ehf. með það að markmiði að auka fjölbreytni leikskólastarfs í bæjarfélaginu í tengslum við byggingu nýs leikskóla í Kambalandi.
Fulltrúar Kambalands hafa að undanförnu verið í sambandi við Margréti Pálu Ólafsdóttur sem rekið hefur leikskóla undir merkjum Hjallastefnunnar við góðan orðstý og hefur Margrét Pála lýst áhuga á að koma að rekstri leikskólans.
Hjallastefnan leggur áherslu á jafnréttisuppeldi, jákvæðni, aga, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingstyrkingu og forsvarsmenn Hjallastefnunnar hafa trú á að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti veitt hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu öllum börnum til hagsbóta.
Á leikskólum bæjarins Óskalandi og Undralandi, er í dag unnið eftir uppeldisstefnu John Dewey ásamt kenningum Loris Malaguzzi sem kennd hefur verið við heimaborg hans á Ítalíu Reggio Emilia og telja bæjaryfirvöld fjölbreytt val foreldra varðandi leikskóla og uppeldisstefnur þeirra auka lífsgæði íbúa.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri, fagnar þessum hugmyndum og segir menn jafnvel gæla við þá hugmynd að bjóða kennslu á yngstu stigum grunnskóla í anda Hjallastefnunnar í hinu nýja hverfi. Ekki liggur fyrir hvenær leikskólinn taki til starfa, það sé háð uppbyggingahraða hins nýja hverfis. Eins og staðan er í dag er ekki aðkallandi að reisa nýjan leikskóla í sveitafélaginu þar sem engir biðlistar eru eftir leikskólaplássum í Hveragerði. Hins vegar er gert ráð fyrir fjölmennri byggð í Kambalandi og byggist það hratt upp verður fljótlega ráðist í byggingu leikskólans"
Ég hef verið bænheyrð! Mig dreymdi líka í sumar að ég væri stödd inni í leikskóla á Suðurlandi og var Margrét Pála líka stödd þar. Hún elti mig um allt kinkandi kolli, elti mig m.a.s. inn á klósett. Ég túlkaði drauminn sem svo að það væri stutt í Hjallastefnuskóla í nágrennið og ég virðist hreinlega hafa túlkað hann rétt 
12.1.2008 | 19:38
Aukning
|
Hálfheiðið og hálfkristið brúðkaup |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
10.1.2008 | 01:09
Hamfarir á Suðurlandi
Já, ég hef farið hamförum undanfarna daga. Byrjaði árið að á gera þrifaplan fyrir heimilið. Setti upp í Excel-skjal (já, já megið alveg gera grín að mér) hvað er gert hvern dag vikunnar. Á mánudaginn tók ég mánudagsskammtinn í gegn, á þriðjudag var þriðjudagsskammturinn tekinn fyrir. Svo vaknaði ég klukkan 7:00 í morgun og reif mig á fætur. Æsa svæf vært svo ég ákvað að nota tímann og byrja að þrífa, komst í svo mikinn ham að ég endaði á að klára líka fimmtudags- og föstudagsskammtana
Sé því fram á að geta slappað aðeins af á morgun áður en ég helli mér í tiltekt í þvottahúsinu. Raunar vantar mig stærra þvottahús. Kann einhver hvernig er hægt að stækka slíkar vistarverur?
Helgin hefur verið plönuð í tiltekt í bílskúrnum, í það minnsta laugardagurinn. Mér finnst gott að hafa mikið að gera innandyra í skammdeginu og kuldanum. Reyndar finnst mér það líka gott á sumrin, er algjör innipúki þegar sólin skín hæst - þoli svo illa hita
Við Eggert ákváðum að bjóða börnunum til Kanarí um páskana en það var allt uppselt, kannski sem betur fer fyrir mig
Lögðum höfuðið í bleyti og ræddum við börnin hvert þau vildu fara í staðinn. Eftir stuttar bollaleggingar voru allir á þeim brókunum að fara til Tromsö að heimsækja bræður hans Eggerts. Strákarnir hafa mikið beðið um það og eru að springa úr spenningi eins og Hörður orðaði það í kvöld. Er planið að fara út föstudaginn 14. mars og koma heim þriðjudaginn 25. mars. Mun Eggert þá verða fertugur út þar sem hann á afmæli 22. mars, sem er reyndar líka afmælisdagur Styrmis bróður hans sem verður 37 ára. Nú þarf bara að ganga frá ferðinni svo maður geti látið sig hlakka almennilega til.
Í skipulagsáráttu síðustu daga ákváðum við Eggert að gifta okkur þegar hann er orðinn fertugur en meðan ég er enn þrítug. Urðum því að velja hentugan dag á bilinu 22. mars til 14. júní, þar sem ég verð 31 árs þann 15. júní. Finnst okkur laugardagurinn 17. maí bara hljóma alveg hreint ljómandi vel og setjum stefnuna á þann dag, láta gefa okkur saman uppi í bústað og bjóða okkar nánasta fólki, grilla haug af kjöti og hafa það gott í góðra vina hóp. Þetta er svo gróft plan, verð að fara að setja skipulagið upp í Excel 



saedis
benna
raudka
bryndisr
angel77
siggasin
kaffikelling
skordalsbrynja
eurovision
ellasprella
gummisteingrims
gully
olofannajohanns
perlaoghvolparnir
kjaftaskur
tinnhildur
